facebook

Talan sjö er lykillinn að vellíðan
Þriðjudagur, 03. Ágúst 2010 09:22
vekjaraklukkaÁrum saman hafa vísindamenn reynt að komast að því hvað geti talist heilbrigður svefn. Ný bandarísk rannsókn leiðir í ljós að sjö klukkustunda nætursvefn er ákjósanlegur til að halda hjartasjúkdómum í skefjum.

Þeir sem víkja langt út af sjö stunda svefni auka líkurnar á hjartasjúkdómum, segir í niðurstöðum rannsóknarinnar sem birtist í fagtímaritinu Sleep. Þeir sem sofa fimm klukkutíma á sólarhring eða skemur eru í sérstakri hættu á að fá hjartasjúkdóma, og eru blundar yfir daginn þar með taldir.

Mesti áhættuhópurinn eru einstaklingar undir 60 ára aldri sem sofa 5 tíma á sólarhring eða skemur. Þeir eru þrisvar sinnum líklegri til að veikjast heldur en þeir sem sofa sjö klukkustundir.

Hinir kúrelsku ættu sömuleiðis að taka þessar tölur til sín, því líkurnar á hjartasjúkdómum stóraukast hjá þeim sem sofa 9 klukkustundir á dag eða lengur.  

Vísindamenn við  ríkisháskólann í Vestur-Virginíu gerðu rannsóknina þar sem svefnvenjur 30 þúsund einstaklinga voru skoðaðar.

www.pressan.is 03.08.2010

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066