| Þegar mínútur skipta máli |
| Fimmtudagur, 04. Mars 2010 00:00 |
|
Alþjóðlegar klínískar leiðbeiningar mæla með því að kransæðavíkkun sé beitt sem fyrstu meðferð við bráðri kransæðastíflu á þeim sjúkrahúsum þar sem nægilegur tæknibúnaður og þjálfun starfsfólks leyfir. Sé mismunur á þeim tíma sem tekur að hefja segaleysandi meðferð annars vegar og krans æðavíkkun hins vegar meiri en 60 mínútur er mælt með því að nota segaleysingu, enda hefur viðbótarávinningur af kransæðavíkkun glatast við lengri meðferðartöf. Tímalengd frá komu á sjúkrahús þar til kransæðavíkkun eða segaleysandi meðferð fer fram er ásamt dánartíðni sjúklinga notaður sem alþjóðlegur mælikvarði á gæði og árangur meðferðarinnar í hverju sjúkrahúsi.1 Alþjóðlegar leiðbeiningar segja fyrir um að stefnt skuli að því að meðaltal tíma frá komu á sjúkrahús þar til kransæðavíkkun hefst (door-to-balloon time, D2B) sé innan við 90 mínútur. Þessi tími er styttri á sjúkrahúsum þar sem kransæðavíkkanir eru gerðar en lengri þegar flytja þarf sjúkling á milli húsa. Mikil áhersla hefur verið lögð á það víða um heim að bæta vinnulag og verkferla við flutning og meðferð sjúklinga með bráða kransæðastíflu. Rannsókn á því hvað einkenndi þau sjúkrahús sem náð höfðu hvað bestum árangri í að stytta D2B tíma og bæta horfur sjúklinga sýndi að skýr markmiðssetning stjórnenda, gerð verklagsreglna, myndun sérhæfðra teyma starfsfólks, árangursmatskerfi og metnaðarfullt starfsumhverfi einkenndi þessi sjúkrahús öðru fremur.4 Á Landspítala er meðaltal D2B tíma 47 mínútur og eru 80% sjúklinga með D2B tíma innan við 60 mín. og 91% minna en 90 mínútur. Dánartíðni á sjúkrahúsi var 1,7% árið 2007.5 Dánartíðni kransæðastíflu innan 30 daga er 3,7% og hefur farið ört lækkandi á undanförnum árum. Þessar árangurstölur Landspítalans eru með því besta sem þekkist í heiminum. Til þess að tryggja að meðferð kransæðastíflu verði áfram í fremstu röð er nauðsynlegt að vinna áfram að því að bæta verkferla. Innlegg Björns Gunnarssonar og félaga er mikilvægt í þessa veru. Með fyrirhugaðri stofnun Hjartamiðstöðvar á Landspítala eftir fáeina daga hefur verið sköpuð aðstaða sem gerir íslensku heilbrigðisstarfsfólki kleift að veita bestu þjónustu sem völ er á í heiminum. |

Karl Andersen hjartalæknir skrifar í nýjasta hefti Læknablaðsins hvað mínútur skipta máli þegar kemur að bráða brjóstverkjum. Tilefnið er ný rannsókn sem einnig er birt í nýjasta hefti læknablaðsins Pistill Karls fer hér á eftir.