| Tekist á um sjúkratryggingafrumvarp |
| Þriðjudagur, 09. September 2008 18:40 |
|
Þingmenn Vinstri - grænna og Framsóknarflokksins hafa gagnrýnt frumvarpið og segja það boða frekari einkarekstur í heilbrigðisþjónustunni. Ganga Vinstri - grænir svo langt að segja að verið sé að markaðsvæða heilbrigðiskerfið og að verið sé að gera grundvallarbreytingar á heilbrigðisþjónustu landsmanna til hins verra. Þá hafi málið verið illa unnið og keyrt í gegnum þingið Talsmenn ríkisstjórnarinnar benda hins vegar á að með því að skilgreina ríkið sem kaupanda heilbrigðisþjónustu og kostnaðargreina einstaka þætti heilbrigðisþjónustunnar í gegnum Sjúkratryggingastofnun sé verið að færa íslensk heilbrigðiskerfið nær kerfum nágrannalandanna.
Markmiðið sé að tryggja almenningi aðgang að heilbrigðisþjónustu óháð efnhag. Nú um klukkan 17 eru um 14 manns á mælendaskrá og því má reikna með að umræðunni ljúki ekki í bráð. |
