| Telja þingmenn hafi látið vátryggingafélög afvegaleiða sig |
| Föstudagur, 09. Mars 2007 00:00 |
Í föstudagsmola á vef Læknafélags Íslands kemur fram að svo virðist sem sumir þingmenn í efnahags- og viðskiptanefnd hafi látið talsmenn vátryggingarfélaganna afvegaleiða sig með málflutningi sínum vegna fyrirhugaðra breytinga á lögum um vátryggingarsamninga.
Þar kemur m.a. fram að í nýrri tillögu (sem samin er af persónuvernd, fjármálaeftirlitinu og fulltrúum vátryggingarfélaganna) er lagt til að persónubundin réttindi sem varin eru af stjórnarskrá íslenska lýðveldisins, Mannréttindasáttmála Evrópu og Ovíedó samningnum um vernd mannréttinda og mannlegrar reisnar við hagnýtingu líffræði og læknisfræði verði látin víkja fyrir hagsmunum vátryggingarfélaganna. Þeir hagsmunir vátryggingarfélaganna sem um ræðir eru að það sé of flókið að framfylgja þeim réttindum sem stjórnarskránni og ofangreindum alþjóðasamningum er ætlað að verja. „Svo virðist sem sumir þingmenn í efnahags- og viðskiptanefnd hafi látið talsmenn vátryggingarfélaganna afvegaleiða sig með málflutningi sínum. Í það minnsta virðast þeir vera að íhuga það orðalag sem samið var á fundinum þann 28. febrúar sl. í fullri alvöru. Því er treyst að þeir þingmenn sem hafa ekki enn gert sér grein fyrir að verið er að stinga uppá að mannréttindabrot verði lögleitt, nái áttum og taki stjórnina af vátryggingarfélögunum og breyti ákvæðinu á þann hátt að upplýsinga um heilsufar foreldra og systkina verði ekki aflað án upplýsts samþykkis þeirra," að því er segir á vef Læknafélags Íslands. Vefur Læknafélags Íslands |

Í föstudagsmola á vef Læknafélags Íslands kemur fram að svo virðist sem sumir þingmenn í efnahags- og viðskiptanefnd hafi látið talsmenn vátryggingarfélaganna afvegaleiða sig með málflutningi sínum vegna fyrirhugaðra breytinga á lögum um vátryggingarsamninga.