facebook

Tilraunir með hjartalyf ÍE lofa góðu
Miðvikudagur, 09. Janúar 2008 19:44

ie2.jpgTilraunir Íslenskrar erfðagreiningar með hjartalyfið DG051 lofa góðu. Að sögn Reutersfréttastofunnar benda tilraunirnar til þess, að notkun lyfsins dragi umtalsvert úr myndun sameindar, sem ÍE hefur komist að raun um að er áhættuþáttur í hjartaáföllum.

Fyrirtækið segir að engar alvarlegar aukaverkanir hafi komið fram.

Síðari hluti þessa tilraunaáfanga hefst í vor og munu 400 sjúklingar taka þátt í rannsókninni.

www.mbl.is 09.01.2008

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066