| Tjá sig ekki frekar um deilurnar við Landsbankann |
| Sunnudagur, 06. September 2009 10:57 |
|
Þar segir að í maí 2008 hafi eingöngu verið samþykkt smávægileg breyting á fjárfestingarstefnu sjóðsins þar sem Landsbankanum var veitt heimild til að kaupa erlend skuldabréf að ákveðnu marki. Eftir sem áður var umsamin fjárfestingarstefna þannig að 90% af fjármunum sjóðsins skyldi varið til kaupa á innlendum skuldabréfum, annað hvort ríkisskuldabréfum eða öðrum bréfum með áþekkri áhættutöku og í ríkisskuldabréfum. „Það er því rangt að stjórn sjóðsins hafi verið að heimila Landsbankanum að taka áhættu umfram það sem almennt felst í kaupum á ríkisskuldabréfum. Hafi upplýsingafulltrúi skilanefndar Landsbankans verið að vísa í aðra og breytta fjárfestingarstefnu er forsvarsmönnum Styrktarsjóðsins ókunnugt um hana og hefur hún ekki verið afhent sjóðnum þrátt fyrir áskoranir þar um," segir í yfirlýsingunni. Líkt og fram hefur komið í fjölmiðlum hefur sjóðurinn höfðað mál á hendur bankanum og krefst skaðabóta að fjárhæð 21 milljón króna vegna þeirra fjármuna sem töpuðust.
Þá segir í yfirlýsingunni að hvorki forsvarsmenn sjóðsins né lögmaður hans hyggist tjá sig frekar um málið opinberlega fyrr en dómru í því hefur verið kveðinn upp. |
