facebook

Þjónusta skert og öryggi ógnað
Mánudagur, 04. Maí 2009 09:31

bradamottaka_2.jpgFyrirhuguð sameining á bráðamóttökum Landspítala mun að öllum líkindum leiða til skertrar þjónustu við sjúklinga og stefna öryggi ákveðinna hópa þeirra í hættu.

Svo segir í ályktun hjúkrunarráðs spítalans vegna fyrirhugaðrar sameiningar á bráðamóttökunum. Stjórn hjúkrunarráðs lýsir yfir miklum áhyggjum vegna þessara fyrirhuguðu breytinga og telur hætt við að þeim árangri sem náðst hefur í meðferð ákveðinna hópa sjúklinga sé ógnað, verði þær að veruleika.

Í ályktuninni segir enn fremur að hópar fagfólks á Landspítala hafi nýverið unnið áhættumat vegna fyrirhugaðra breytinga. Niðurstöður allra hópanna voru að við sameininguna skapist mikill kostnaður sem leggist á önnur svið spítalans en slysa og bráðasvið ef tryggja á öryggi og viðhalda sömu þjónustu. Fjárhagslegur ávinningur af sameiningunni liggur því ekki fyrir.
Stjórn hjúkrunarráðs skorar á framkvæmdastjórn spítalans að endurskoða þessa ákvörðun.

Ekki náðist í Huldu Gunnlaugsdóttur forstjóra framkvæmdastjórnar spítalans við vinnslu fréttarinnar.

- jss

www.visir.is 04.05.2009 

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066