facebook

Tóbak drepur miljarð á þessari öld
Þriðjudagur, 03. Júlí 2007 09:01
reykingarkona.jpg1 miljarður manna deyr vegna tóbaksreykinga á þessari öld ef ekki verður gripið til róttækra aðgerða til þess að stöðva reykingar. Í nýrri skýrslu Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar segir að nauðsynlegt sé að ríkar og fátækar þjóðir taki höndum saman til þess koma í veg fyrir að svo margir deyi úr sjúkdómum sem reykingar valda.

Douglas Bettcher sem er í forystu baráttu heilbrigðisstofnunarinnar gegn tóbaksreykingum segir að tóbak sé mjög hættuleg vara sem drepi helming allra þeirra sem reyki. Verið sé að vinna að alheimsáætlun gegn reykingum á alþjóðlegri ráðstefnu sem nú sé hafin Bangkok.

www.ruv.is 02.07.2007

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066