| Töpuðu tugum milljóna |
| Sunnudagur, 30. Ágúst 2009 19:46 |
|
Sjóðurinn hefur á undanförnum árum styrkt 20 til 25 fjölskyldur hjartveikra barna. Neistinn tapaði 28 milljónum króna í bankahruninu en sjóðurinn ávaxtaði peninga sína hjá eignastýringu gamla Landsbankans. Formaður sjóðsstjórnar segir að samningurinn hafi verið þverbrotinn. Því hafi verið ákveðið höfða mál á hendur gamla Landsbanka. Samkvæmt samningnum átti bankinn að ávaxta 90% af fé sjóðsins í ríkisskuldabréfum eða skuldabréfum sveitarfélaga. Guðrún Pétursdóttir, formaður Neistans, segir að tapið komi illa niður á þeim fjölskyldum sem sjóðnum er ætlað að styrkja. Mál Neistans verður tekið fyrir í Héraðsdómi á þriðjudag.
|
