| Tólf ára stúlka hneig niður og þarf nýtt hjarta |
| Sunnudagur, 28. Nóvember 2010 10:11 |
|
Þessi stúlka, sem fór í skólann eldhress síðastliðinn miðvikudag, missti meðvitund í búningsklefanum í sundtíma og er nú á gjörgæsludeild Landspítalans í hjarta- og lungnavél þar sem hún berst fyrir lífi sínu. Hjartað hennar hefur orðið fyrir miklum skaða og mun hún þurfa nýtt hjarta eins fljótt og auðið er. Móðir hennar, María Egilsdóttir, segist staðfesta það að heilbrigðiskerfið hér á landi sé frábært, yndislegt og vandað fólk í hverju rúmi, bæði á Landspítalanum og Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri.Mikið er ég fegin því að hér er kreppa og bullið um að flytja Reykjavíkurflugvöll er ekki efst á dagskrá, flugvöllinn má aldrei færa úr Vatnsmýrinni, þar getur verið um líf og dauða að tefla. Eins og gefur að skilja þá verður fjölskylda hennar lengi frá vinnu með tilheyrandi tekjumissi. Þess vegna viljum við sýna hug okkar í verki og koma af stað söfnun. Það síðasta sem fjölskyldan þarf er að hafa áhyggjur af fjármálum. Það skiptir engu máli hve lítið þið gefið, margt smátt gerir eitt stórt. Sýnum þessari góðu fjölskyldu að hún búi á Íslandi þar sem ríkir samkennd og samhugur, þar sem hjálpast er að á erfiðum tímum. Reikningur Maríu Egilsdóttur, móður Helgu, er 0565-26-110378, kennitala 180470-3449. |
