| Tómas Guðbjartsson ráðinn yfirlæknir og prófessor í skurðlækningum |
| Miðvikudagur, 20. Ágúst 2008 21:32 |
Tómas Guðbjartsson hefur verið ráðinn yfirlæknir á skurðlækningasviði Landspítala og jafnframt því prófessor í skurðlæknisfræði við læknadeild Háskóla Íslands. Um er að ræða samhliða starf prófessors og yfirlæknis og er prófessorinn yfirmaður kennslu og vísinda en því felst að meginverkefni hans sem yfirlæknis á LSH er umsjón menntunar og vísindarannsókna í skurðlækningum á skurðlækningasviði LSH. Tómas Guðbjartsson er fæddur í Reykjavík þann 11. janúar 1965. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík í júní 1985, kandídatsprófi í læknisfræði við læknadeild H.Í. í júní 1991 og tveimur árum síðar B.S. prófi við sömu deild. Að loknu 5 ára framhaldsnámi í almennum skurðlækningum við sjúkrahúsið í Helsingjaborg í Svíþjóð lagði Tómas stund á nám í hjarta- og lungnaskurðlækningum við háskólasjúkrahúsið í Lundi í Svíþjóð. Frá 1999 starfaði Tómas sem sérfræðingur við hjarta- og lungnaskurðdeild háskólasjúkrahússins í Lundi. Veturinn 2001 - 2002 var hann við störf við Brigham Harvard háskólasjúkrahúsið í Boston og síðan til 2005 aftur sérfræðilæknir í Lundi. Frá 2005 hefur Tómas verið sérfræðilæknir á brjóstholsskurðlækningadeild LSH. www.landspitali.is |

Tómas Guðbjartsson hefur verið ráðinn yfirlæknir á skurðlækningasviði Landspítala og jafnframt því prófessor í skurðlæknisfræði við læknadeild Háskóla Íslands. Um er að ræða samhliða starf prófessors og yfirlæknis og er prófessorinn yfirmaður kennslu og vísinda en því felst að meginverkefni hans sem yfirlæknis á LSH er umsjón menntunar og vísindarannsókna í skurðlækningum á skurðlækningasviði LSH.