facebook

Tónlistarmaðurinn Bo Diddley látinn
Mánudagur, 02. Júní 2008 21:17

bo_diddley.jpgBandaríski blústónlistarmaðurinn Bo Diddley, er látinn 79 ára að aldri.  Diddley lét lífið af völdum hjartabilunar í Flórída, að sögn talsmanns hans. 

Diddley, sem skaust á stjörnuhiminn árið 1955 með samnefndri plötu sinni, vann til fjölda Grammy verðlauna á ferli sínum og var þekktur fyrir að spila á heimagerðan kassalaga gítar.  Diddley hafði átt við veikindi að stríða í nokkurn tíma, en hann fékk heilablóðfall í ágúst árið 2007.

Meðal þekktra laga Diddleys voru Who Do You Love, Before You Accuse Me, and Mona.

www.mbl.is 02.06.2008

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066