| Þrek íslenskra karla lítið |
| Mánudagur, 07. Janúar 2008 22:51 |
|
Í gær greindum við frá því að undanfarna tvo áratugi hafi þol Dana minnkað til muna. Sama er uppi á teningnum hér á landi. Alvarlegust er ástandið meðal karla í aldurshópnum 18-24 ára, þeir eru of þungir og þreklausir. Kári Jónsson er lektor í íþróttafræðum við íþróttaskólann á Laugavatni. Hann hefur rannsakað þol ungra karlmanna hér á landi. Hann segir þetta mikið áhyggjuefni. Ástandið sé verra núna en nokkru sinni fyrr.. Eina ráðið er að menn borði hollari mat og hreyfi sig meira. Hreyfimælar voru settir á þá sem tóku þátt í könnun Kára. Í ljós kom að margir hreyfðu sig minna en hálftíma á dag. Hann bendir einnig á að þeir drengir sem stundi líkamsrækt leggi mesta áherslu á að byggja upp vöðva í stað þess að bæta þolið. |

Hjarta- og æðasjúkdómum mun fjölgar mjög hér á landi á næstunni vegna hreyfingaleysis. Þetta segir íþróttafræðingur sem hefur áhyggjur af ástandinu. Margir ungir menn hreyfa sig minna en aldraðir og hreyfihamlaðir.