| Þreyttir læknar ósáttir við vaktaálag |
| Sunnudagur, 28. Mars 2010 13:52 |
|
Deilan snýst um aukið vaktaálag en ný vaktatafla á að taka gildi á spítalanum um mánaðarmótin. Hjördís Þórey Þorgeirsdóttir formaður almennra lækna segir breytingarnar vera mikla afturför á vinnuumhverfi þessa hóps og við það verði ekki unað. Í dag vinna læknarnir um 48 klukkustundir á viku sem er hámarksvinna, en í nýja fyrirkomulaginu verða stundirnar uppundir 60 á viku. Þessu fylgir engin kaupaukning og fólk á erfitt með að sætta sig við þetta að sögn Hjördísar. Margir séu jafnvel byrjaðir að hugsa út fyrir landsteinana. Björn Zoega forstjóri Landspítalans kemur inn á málið í vikulegum pistli sínum á heimasíðu spítalans. Þar segir hann algjörlega nauðsynlegt að sjúklingar þurfi ekki að efast um öryggi sitt og biður fólk um að fara varlega í umræðunni og tilkynna stjórnendum spítalans án tafar telji þeir að öryggi sjúklinga sé ógnað. |
