| Þriðja hjartaþræðingartæki Landspítala í notkun í haust |
| Mánudagur, 21. Júlí 2008 20:47 |
|
Gjafa- og styrktarsjóður Jónínu S. Gísladóttur leggur fram 75 milljónir króna til kaupa á hjartaþræðingartækinu. Sá sjóður var stofnaður árið 2001 með 200 milljóna króna framlagi Jónínu í sjóð til að efla hjartalækningar á Landspítala. Síðan hefur sjóðurinn stutt hjartalækningarnar ríkulega með fjárframlögum, þar á meðal vegna kaupa á seinna hjartaþræðingartækinu árið 2001. Hjartaheill, landssamtök hjartasjúklinga eiga 25 ára afmæli á þessu ári og minnast tímamótanna meðal annars með því að styrkja kaup á hjartaþræðingartækinu og nauðsynlegum fylgibúnaði. Samtökin leggja fram 25 milljónir og ætla þar að auki að efna til landssöfnunar. Takmark Hjartaheilla er að safna 50 milljónum króna á afmælisárinu og rennur allt það fé sem safnast umfram áðurnefndar 25 milljónir einnig til hjartalækninga á Landspítala. Samningurinn um kaup á hjartaþræðingartækinu var undirritaður á hjartaþræðingardeildinni á Landspítala Hringbraut þar sem nýja hjartaþræðingarstofan verður líka. Viðstaddir voru meðal annarra Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra, Guðmundur Bjarnason formaður Hjartaheilla, Sveinn Guðmundsson framkvæmdastjóri Hjartaheilla og Jón Pálmason, sonur Jónínu S. Gísladóttur, en hann á sæti í stjórn sjóðsins sem við hana er kenndur.
Nokkrir fróðleiksmolar varðandi stöðu hjartaþræðinga á Landspítala nú í júlí 2008
Hjartalækningar á Landspítala eru í fremstu röð og standast vel samjöfnuð við það besta sem gerist á öðrum háskólasjúkrahúsum. Árið 2007 var byrjað að færa gögn um allar kransæðaþræðingar og kransæðavíkkanir á Íslandi í sænska gagnagrunninn SCAAR sem öll þræðingarstarfsemi í Svíþjóð tekur þátt í. Þessi gagnagrunnur hefur sannað gildi sitt í gæðaeftirliti þar í landi í áratugi. Tilgangur með því að tengjast SCAAR var að auka gæðaeftirlit, meðal annars með því að geta skoðað starfsemistölur og árangursmælingar í rauntíma og meta þannig starfsemina stöðugt, t.d. varðandi árangur nýrrar meðferðar, svo og til að auka enn frekar öryggi sjúklinga, t.d. varðandi fylgikvilla þræðinga. Þetta samstarf háskólasjúkrahússins við Svía varðandi skráningu gagna um hjartaþræðingar er því mjög mikilvægt til þess að tryggja sem best árangur við hjartaþræðingarnar. |
