| Þriðja hjartaþræðingartækið hjá Landspítala |
| Föstudagur, 28. Nóvember 2008 15:27 |
|
Áætlaður heildarkostnaður við nýju hjartaþræðingarstofuna nemur nú um 220 milljónum króna en af þeirri upphæð greiðir Landspítali kostnað við breytingu á húsnæði sem er áætlaður um 5 milljónir króna. Tækjabúnaðurinn er að langmestu leyti keyptur fyrir gjafafé. Tækið sjálft kostar 120 milljónir króna. Gjafa- og styrktarsjóður Jónínu S. Gísladóttur gaf 63 milljónir til kaupa á tækinu og Landspítali lagði fram tæpar 6 milljónir. Eftirstöðvar greiðslu eru um 40 milljónir án virðisaukaskatts sem koma til greiðslu snemma á næsta ári.
Samtökin Hjartaheill gefa annan búnað í hjartaþræðingarstofuna og Landspítali leggur fram á móti. Heildarkostnaður er um 52 milljónir króna. Eftirstöðvar greiðslu eru um 11 milljónir án virðisaukaskatts sem koma til greiðslu snemma á næsta ári. |
