| Trúnaðarbrestur |
| Miðvikudagur, 11. Febrúar 2009 11:56 |
|
Mér var orðið ljóst að á milli mín og læknisins hafði orðið alvarlegur trúnaðarbrestur. Mér fannst kerfið hafa brugðist mér og spítalinn ekki lengur skjól heldur óvinir í hverju horni. Glíman stóð sem hæst.
Ég átti tíma hjá lækninum seinnipartinn í ágúst og þegar ég mætti sagði ég honum að hann nyti ekki lengur trúnaðar af minni hálfu, honum brá og það kom á hann vandræðalegur svipur. Það leyndi sér ekki að honum leið ekki vel. Ég gekk út og mér var létt, ég hafði rekið læknirinn minn. Um leið varð ég óumræðilega dapur og sorgmæddur yfir þeirri staðreynd að væntanlega væri framundan margra ára barátta við að ná fram rétti mínum og viðurkenningu á því að um mistök hefði verið að ræða. Allt haustið var ég reglulegur gestur á bráðamóttökunni þar sem heilsufarið var ekki merkilegt. Ég hélt illa uppi blóðþrýstingi og var hvað eftir annað við það að líða út af. Í nánast hvert skipti sögðu læknar mér að ég ætti að vera betri og það var þungur kross að bera. Það kom loks að því að ég hitti nýja læknirinn minn og ég treysti honum. Samt varð ég fyrir ákveðnum vonbrigðum í upphafi þar sem hann tók undir mat annarra lækna um að ég ætti að vera brattari.
Í desember fór mér að hraka, mér leið illa með stöðuga brjóstverki og alveg ómögulegur. Um áramót fór ég að tala um það við læknirinn minn að hvað svosem hver segði þá væri eitthvað að, þetta væri ekki eðlilegt. Í byrjun mars fór ég í hjartaþræðingu og minn læknir var sjálfur við þræðingaborðið. Að lokinni þræðingu kom hann til mín alvarlegur í bragði og sagðist eiginlega þurfa að biðja mig afsökunar á því að hafa tekið undir þann söng að ég ætti að vera hressari.
Við nánari athugun kom í ljós að drepið á hjartanu var svo umfangsmiðið að þegar hjartað endurmótaði sig eftir hjartaáfallið myndaðist á vinstri sleglinum gúlpur eða Aneurysm. Gúlpurinn gerði það svo að verkum að þegar hjartað dældi blóði út í líkamann blés hluti hjartans út eins og blaðra með þeim afleiðingum að dælugeta þess var stórlega skert. Ég var reiður, reiður læknunum sem höfðu sagt við mig í heilt ár að ég ætti að vera hressari. Ég var reiður kerfinu sem spítalinn stjórnaðist af og ég var reiður út í Guð. Reykjavík. 10. Febrúar. 2009 Björn |
