facebook

Tvö mest notuðu sykursýkislyfin auka hættu á hjartasjúkdómum
Föstudagur, 27. Júlí 2007 10:42
Multithumb found errors on this page:

There was a problem loading image /u03/usrhome/hjartali/public_html/images/stories/avandia.jpg

avandia.jpgTalið er að lyfin Avandia og Actos, sem eru tvö af mest notuðu sykursýkislyfjum í Bretlandi, tvöfaldi hættuna á hjartasjúkdómum. Í Bretlandi hefur notkun lyfjanna tvöfaldast á síðustu þremur árum, vegna aukinna offituvandamála.

Breska blaðið Guardian segir að síðasta ári hafi 1,8 milljón lyfseðla verið skrifaðir út í Bretlandi vegna lyfjanna. Vísindamennirnir telja að það jafngildi því að sjö hundruð þúsund sjúklingar noti lyfin, en Heilbrigðisstofnun Breta mælir með notkun þeirra. Samkvæmt upplýsingum frá Lyfjastofnun eru lyfin á markaði hér á landi.

www.visir.is 27.07.2007

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066