| Um 300 kærðu til landlæknis |
| Föstudagur, 29. Febrúar 2008 14:52 |
|
Alls bárust 274 kvartanir og kærur til Landlæknirs árið 2007 sem er svipað hlutfall og árinu áður. Málin eru mis alvarleg, allt frá hnökrum í samskiptum til alvarlegra mistaka. Kvartanirnar beindust í flestum tilvikum að Landspítalanum, alls 90 talsins. 25 þeirra lutu að bráða- og slysalækningadeild, 18 að skurðlækningadeild, 15 að geðdeild og 14 að lyflækningadeild. Aðfinnslur frá Landlækni voru 20. Í 42 tilvikum sá Landlæknir ástæðu til að koma með ábendingu um að betur mætti fara. Í 131 tilfelli þótti ekki ástæða til neinnar aðgerðar. www.ruv.is 29.02.2008 |

Tæplega 300 kvartanir og kærur bárust til Landlæknis á síðasta ári. Í 90 tilfellum beindust kvartanirnar að Landspítalanum. Einn heilbrigðisstarfsmaður var sviptur starfsleyfinu að hluta til á árinu.