| Umtalsverðar breytingar á heilbrigðisþjónstunni |
| Miðvikudagur, 07. Janúar 2009 11:36 |
|
Ráðgert er að sjúkrastofanir verði sameinaðar og aðrar jafnvel lagðar niður. Starfsmenn St. Jósefsspítala og Sólvangurs fordæmdu í gær vinnubrögð ráðherra en orðrómur er uppi um að að breyta eigi spítalanum í öldrunarstofnun. ,,Það er alveg ljóst að niðurskurður í heilbrigðiskerfinu þýðir uppsagnir á fólki þar sem launakostnaður er 70-80% af rekstrarkostnaði heilbrigðisstofnana. Fólk sem ríkið þarf væntanlega að greiða atvinnuleysisbætur til," segir Eygló Harðardóttir þingmaður Framsóknarflokksins. Hún krafðist þess í gær að heilbrigðisnefnd Alþingis yrði kölluð saman til að ræða fyrirhugaðar breytingar. Ásta Möller, formaður heilbrigðisnefndar, hefur staðfest við Eygló að Guðlaugur Þór getur fundað með nefndinni á föstudaginn og kynnt þær breytingar sem eru fyrirhugaðar.
Eygló sagði í samtali við Vísi í gær óásættanlegt að breytingarnar hafi ekki verið ræddar á Alþingi. Afar óeðlilegt væri að þingmenn hafi heyrt fyrst af málinu í fjölmiðlum. |
