| Undirbýr Eftirlitsstofnun heilbrigðisþjónustu |
| Miðvikudagur, 28. Janúar 2009 19:53 |
|
Samkvæmt frumvarpsdrögunum mun ný stofnun, Eftirlitsstofnun heilbrigðisþjónustu, taka við verkefnum frá Lyfjastofnun og verkefnum landlæknis er varða eftirlitshlutverk embættisins. Þar með yrðu andlæknisembættið, þ.e.a.s. eftirlitsþáttur starfseminnar, Lyfjastofnun og lyfjagreiðslunefnd sameinuð í eina stofnun. Hugmyndin er að byggja með þessu upp eina öfluga eftirlits- og stjórnsýslustofnun sem falið yrði að hafa eftirlit með öllum þáttum er snúa að heilbrigðisþjónustunni. Frumvarpsdrögin gera ráð fyrir að hlutverk Eftirlitsstofnunar heilbrigðisþjónustu yrði m.a. eftirfarandi:
- að hafa eftirlit með heilbrigðisþjónustu og heilbrigðisstarfsmönnum, Í drögunum er gert ráð fyrir að hlutverk lýðheilsustofnunar yrði m.a. eftirfarandi:
- að veita ráðgjöf um heilbrigðismál,
Heilbrigðisráðherra ætlar að með þessu fyrirkomulagi nýtist sérhæfing betur og að með þessu verði til skilvirkari stjórnsýslu og samhæfðara eftirlit með fjölbreyttum þáttum heilbrigðisþjónustunnar. |
