| Unglæknar fordæma breytingar um borð í neyðarbílnum |
| Fimmtudagur, 13. Desember 2007 16:24 |
|
Í yfirlýsingunni er sagt ljóst að bráðatæknir með átta mánaða þjálfun komi ekki í stað reynds læknis og „því er ákvörðunin varla byggð á faglegum forsendum," segir í yfirlýsingunni. „Því fordæmir stjórn Félags ungra lækna þessa ákvörðun og telur hana aðför að öryggi og velferð þeirra sjúklinga sem eru hvað veikastir á höfuðborgarsvæðinu en neyðarbíllinn hefur sinnt útköllum þar sem líf sjúklinga er talið liggja við s.s. í alvarlegum slysum, hjartastoppum og bráðum veikindum."
Þá er því bætt við að unglæknarnir álíti að stjórnendur Landspítala ættu að huga að „öðrum sparnaðarleiðum, sé þeirra þörf, sem ekki fela í sér skerðingu á þjónustu við bráðveika sjúklinga." |
