facebook

Unglæknar segja upp störfum
Föstudagur, 25. Janúar 2008 16:39

sjkrahs.jpgUnglæknar á Slysa- og bráðadeild LSH hafa ákveðið að endurnýja ekki ráðningarsamninga sína. Ástæðan er, segir í tilkynningu frá félagi þeirra, skerðing á námstækifærum og óbærilegt vinnuálag vegna ákvörðunar um breytt fyrirkomulag á neyðarbíl höfuðborgarsvæðisins, en læknir er ekki lengur í bílnum.

Af 14 ungum læknum verða einungis þrír að störfum eftir 1.mars. Í tilkynningunni segir, að nú sé þeim gert að sinna sjúklingum innan bráðadeildarinnar ásamt því að hlaupa út í útköll utan spítalans.

Þessi breyting hafi orðið til þess að eftir einn til tvo mánuði verði ekki læknar til að sinna þessari þjónustu og því stefni í neyðarástand innan deildarinnar. Yfirstjórn Slysa- og bráðadeildar hafi ekki aðhafst neitt til að bregðast við þessu.

www.ruv.is 25.01.2008

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066