facebook

Uppsagnir unglækna til að bæta kjör
Þriðjudagur, 29. Janúar 2008 12:50

lsh_merki.jpgRagnar Freyr Ingvarsson, formaður félags ungra lækna, segir ákvarðanir unglækna um að hverfa frá störfum á Slysa- og brásviði einungis byggðar á faglegum forsendum. Ummæli Más Kristjánssonar, sviðsstjóra, að ungir læknar vilji með þessu knýja á um kjaramál sín, séu bæði ósönn og ósanngjörn.

14 unglæknar hætta störfum á Slysa- og bráðasviði Landspítalans næstu daga, sumir þeirra hafa sagt upp störfum á meðan aðrir ætla ekki að endurnýja samninga sína. Frá 1. mars verða því einungis tveir unglæknar starfandi á deildinni.

Ragnar Freyr Ingvarsson segir ungum læknum faglega misboðið nú þegar skerða á læknaþjónustu Slysa- og bráðamóttöku á þann hátt sem ákveðið hefur verið. Ragnar Freyr segir ásakanir Más Kristjánssonar í Kastljósi í gærkvöldi ósanngjarnar.

www.ruv.is 29.01.2008

 

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066