| Vélmenni lagar óreglulegan hjartslátt |
| Þriðjudagur, 24. Júlí 2007 14:02 |
|
Multithumb found errors on this page: There was a problem loading image /u03/usrhome/hjartali/public_html/images/stories/velmenni.jpg
Læknar Sjúkrahúss heilagrar Maríu í London segja aðgerðina minnka áhættu sjúklings og auka afköst í slíkum aðgerðum. Rúmlega 20 manns hafa gengist undir aðgerð með vélmenninu, sem er eitt fjögurra í heiminum. Þetta kemur fram á fréttavef BBC. Vírarnir, sem þræddir eru í gegnum hjartaæðar, gefa frá sér rafstraum í ákveðna hluta hjartavöðvans. Straumurinn er notaður til þess að eyðileggja örsmáa hluta hjartavefjarins sem valda óreglulegum hjartslætti. Vélmennið, sem kallað er Sensei, er notað þannig að læknar stjórna í gegnum tölvu staðsetningu vélhandarinnar og stjórna vírunum. Í framtíðinni er stefnt að því að vélmennið geti komið vírunum fyrir með nákvæmum hætti á stað sem læknarnir velja með því að smella á tölvumynd. |

Skurðlæknar á Bretlandi prófa nú í fyrsta sinn vélmenni sem getur framkvæmt flóknar hjartaaðgerðir. Vélmennið er notað til þess að leiða þunna víra í gegnum æðar í hjartans til þess að laga óreglulegan hjartslátt.