| „Verið að berja okkur til hlýðni“ |
| Laugardagur, 19. Apríl 2008 00:00 |
|
Og hjúkrunarfræðingarnir standa fast á sínu: Þeir munu ganga út þegar klukkan slær tólf á miðnætti 1. maí taki stjórn spítalans ekki breytingu á vinnutíma þeirra til baka. Uppsagnarfrestur ekki framlengdurYfirstjórn LSH tók fyrir nokkru þá ákvörðun að framlengja ekki um þrjá mánuði uppsagnarfrest hjúkrunarfræðinganna þótt hún hafi heimildir til slíks. Sú ákvörðun stendur, þrátt fyrir að ekkert þokist í samkomulagsátt. „Ég er ekki bjartsýn á að deilan leysist,“ segir deildarstjóri og undir þau orð taka hjúkrunarfræðingarnir.Í gær fóru fram fyrstu einstaklingsviðtölin við hjúkrunarfræðingana og í þeim lögðu yfirmenn samkvæmt heimildum Morgunblaðsins fram tilboð sem felur í sér að breytingar á vinnufyrirkomulagi, sem deilan snýst um, verði teknar upp í þremur áföngum og að fullu komnar til framkvæmda að ári. Þá fái þeir 9.000 kr. í fastan bílastyrk á mánuði í sinn hlut – sem er tæplega uppbót þar sem þegar er slíkur styrkur, aðeins lægri, fyrir hendi. Hjúkrunarfræðingar sem Morgunblaðið ræddi við í gær segja tilboðið „hlægilegt“ og „veimiltítulegt“ og að því verði hiklaust svarað með neitun. Var það einróma niðurstaða fundar allra hjúkrunarfræðinganna í gær.
„Það er verið að berja okkur til hlýðni,“ segir Vigdís Árnadóttir skurðhjúkrunarfræðingur. |
