| Verkefnastyrkur úr Rannsóknasjóði |
| Þriðjudagur, 29. Janúar 2008 21:34 |
|
Í þessari rannsókn verða skoðuð tengsl persónuleika D við hjartasjúkdóma og áhættuþætti þeirra. Rannsóknin er gerð með það fyrir augum að meta hvort líta megi á persónuleika D sem áhættuþátt í kransæðasjúkdómum og nýta í forvarnar- og meðferðarstarfi gegn hjartasjúkdómum. |
