| Verum upplýst og höfum skoðanir |
| Sunnudagur, 11. Febrúar 2007 00:00 |
Fyrir rúmum mánuði síðan minntist ég á það hér að það væri gleðilegt sem kom fram hjá starfandi Landlækni í Kastljósi að fara ætti í rannsókn á mistökum á heilbrigðisstofnunum hérlendis.Í ljósi reynslunnar af slíkri umræðu hefur komið mér þægilega á óvart sú mikla og opna umræða síðustu vikuna þar sem hver greinin birtist á fætur annari um þessi mál. Viðurkenning á staðreyndum blasir við, mistök eiga sér stað á heilbrigðisstofnunum. Ég vona að þessi umræða sé aðeins upphaf að breyttum viðhorfum yfirmanna heilbrigðismála og það er gleðilegt til þess að vita að forráðamenn LSH fylgja þessu eftir með öryggisviku sem hefst þann 19 febrúar. Í mínum huga er ekki vafi að viðurkenningin ein byggir upp traust á heilbrigðisstarfsfólki, það er mannlegt að gera mistök og þeir sem viðurkenna mistök sín eru fremstir meðal jafningja. Málið er mér skylt því að níunda febrúar síðastliðin voru liðin fjögur ár frá því að ég fékk alvarlegt hjartaáfall. Töluverður dráttur varð á réttri greiningu og meðferð. Síðan hefur öryggi sjúklinga verið mér ofarlega í huga. Því miður hafði þetta hjartaáfall mitt þær afleiðingar í för með sér fyrir mig að ég er með hjarta sem að afkastar um þriðjungi af því sem það ætti að gera og er ég á mörkum þess að þurfa á nýju hjarta að halda. Eins og gefur að skilja hefur líf mitt breyst mikið en ég var 37 ára gamall þegar þetta var. Hvað sem öðru líður þá er það þannig að sjúkrahús er hættulegur staður til að vera á og það er eðlilegt. Þar kemur inn veikt fólk, sumir alvarlega veikir og aðrir ekki. Auk þess eru framkvæmdar á sjúkrahúsum aðgerðir á hverjum degi sem eru ekki hættulausar og geta auðveldlega orðið lífshættulegar. Á síðustu fjórum árum hef ég oft þurft á þjónustu sjúkrahúsa að halda og þar vinnur fólk sem bjargar mannslífum á hverjum degi og á heiður skilið fyrir sín störf. Því má hinsvegar ekki gleyma að þrátt fyrir það að þarna sé afar gott fólk upp til hópa, vel þjálfað og hámenntað, þá er það mannlegt. Fólk sem er mannlegt gerir mistök og af því er engin skömm. Aftur á móti er afar skammarlegt hvernig viðbrögð hafa hingað til verið ef fólk kvartar og ég tala nú ekki um ef það kærir og fer í mál við sjúkrastofnanir. Því miður er það svo að hjartasjúklingar eru einn af þeim hópum sem oft eru ranglega greindir eða greining tekur langan tíma og þegar um er að ræða hjartað er það eins og gefur að skilja hið versta mál. Rannsóknir hafa sýnt að eldri konur og ungir karlmenn virðast fara verst út úr slíkum málum og er því oft borið við að einkenni séu ekki “dæmigerð” hjá viðkomandi. Það er afar mikilvægt fyrir sjúkling sem kemur inn á sjúkrahús að hafa augu og eyru opin og taka virkan þátt í þeirri meðferð sem verið er að veita hvort sem um er að ræða greiningu eða meðferð á sjúkdóm eða sjúkdómsástandi. Það er gott að hafa skoðun á því sem á sér stað og vera duglegur eða dugleg að spyrja. Það að hafa skoðanir og fara fram á að vera upplýstur um gang mála getur skipt sköpum. Reykjavík 11 febrúar 2007 Björn
|

Fyrir rúmum mánuði síðan minntist ég á það hér að það væri gleðilegt sem kom fram hjá starfandi Landlækni í Kastljósi að fara ætti í rannsókn á mistökum á heilbrigðisstofnunum hérlendis.