facebook

VG beinir spjótum að Guðlaugi Þór
Sunnudagur, 16. Mars 2008 11:54
hjukrun.jpgÞingflokkur Vinstri grænna segir mikilvægustu heilbrigðisstofnunum landsmanna haldið í fjárhagslegri spennitreyju. Upplausnarástand hafi skapast í heilbrigðiskerfinu vegna framgöngu Guðlaugs Þórs Þórðarsonar heilbrigðisráðherra.

"Vinstrihreyfingin - grænt framboð mun ekki láta ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar komast þegjandi og hljóðalaust upp með að vinna óbætanleg skemmdarverk á heilbrigðiskerfinu og flæma þaðan burtu í stórum stíl mestu verðmæti þess, starfsfólkið," segir í ályktun þingflokksins.

Sjálfur þvertekur Guðlaugur fyrir að heilbrigðisstofnanir séu í fjárhagslegri spennitreyju. Fjárheimildir til Landspítalans hafi þvert á móti verið auknar í fjárlögum og fjáraukalögum. "Ég hvet menn til að skoða úttekt Efnahags- og framfarastofnunar OECD á heilbrigðismálum," segir hann. "Þar bendir ekkert til þess að heilbrigðiskerfið hafi þurft að þola fjársvelti eða niðurskurð."

Guðlaugur bætir við að menntunar- og mönnunarmál séu tvö af þeim stóru verkefnum sem heilbrigðisþjónustan þurfi að takast á við. "Það er eitthvað sem við tökum mjög alvarlega, og munum fara í þær ráðstafanir sem við teljum að muni hjálpa til við að mæta því." - sþs

Fréttablaðið 16.03.2008

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066