Stinningarlyf gera mögulega meira gagn en nítróglýserín þegar bjarga þarf hjartanu eftir hjartaáfall.
| Viagra bjargar hjartasjúklingum |
| Fimmtudagur, 08. Mars 2007 00:00 |
Stinningarlyf gera mögulega meira gagn en nítróglýserín þegar bjarga þarf hjartanu eftir hjartaáfall. Meðan hjartaáfall á sér stað fær hjartað ekkert súrefni.Meðan hjartaáfall á sér stað fær hjartað ekkert súrefni. Þetta súrefnisleysi orsakar miklar skemmdir, sem verður að laga eins fljótt og auðið er ef auka á lífslíkur sjúklings. Í dag er nítróglýserín notað til að hjálpa til við enduruppbygginguna, með takmörkuðum árangri. Bandarískar rannsóknir benda nú til þess að rislyf geri meira gagn. Lyfin Viagra og Levitra voru prófuð á músum sem fengið höfðu hjartaáfall. Inngjöf stinningarlyfja minnkaði skemmdirnar í kjölfar áfallsins á mun árangursríkari hátt en nítróglýserínið. Þar að auki minnkaði inntaka þess líkurnar á skemmdum ef þau voru tekin inn fyrir hjartaáfallið. Viagra virðist því hafa góð áhrif á ýmsa starfsemi líkamans. - tg |

Stinningarlyf gera mögulega meira gagn en nítróglýserín þegar bjarga þarf hjartanu eftir hjartaáfall. Meðan hjartaáfall á sér stað fær hjartað ekkert súrefni.