| Vilja norrænt bann við transfitusýrum |
| Miðvikudagur, 29. Október 2008 16:16 |
|
Tillaga þessa efnis var samþykkt á þingi Norðurlandaráðs í Helsinki í dag. Segir þar, að minnkun notkunar á transfitusýrum ætti að verða innan fimm ára og eru norrænu ríkisstjórnirnar hvattar til að beita þrýstingi innan ESB og í EES löndunum um að þau setji sömu reglur. Að auki er lagt til, að matvæli sem ekki innihalda transfitusýrur verði merkt sérstaklega. „Það er mikilvægt að Norðurlöndin gangi á undan með góðu fordæmi á þessu sviði. Bann við transfitusýrum getur verið öðrum innblástur – meðal annars ESB og EES-svæðinu," segir Henrik Dam Kristensen, fulltrúi í flokkahópi Jafnaðarmanna og neytendanefnd Norðurlandaráðs við vef Norðurlandaráðs.
Danir samþykktu lög um takmörkun á transfitusýrum við tvö prósent, árið 2004. Brot á lögunum getur haft í för með sér allt að tveggja ára fangelsi. Árangurinn er sá að í dag er innihald transfitusýra í matvælum í Danmörku mjög lágt miðað við hin Norðurlöndin. Lögin hafa meðal annars haft í för með sér að New York borg hefur samþykkt svipað bann í þeim 25.000 veitingahúsum sem eru í borginni. |
