| Vilja síður þiggja líffæri úr morðingja |
| Laugardagur, 06. Júní 2009 08:55 |
|
Flestir reyndust viljugri að þiggja líffæri úr manneskju sem sagt var að hefði sýnt góða siðferðislega hegðun í lífinu, viðbrögðin voru neikvæðust þegar viðkomandi var sagður morðingi. Könnunin, sem framkvæmd var við háskólann í Bristol í Bretlandi, var framhald af könnun sem leiddi í ljós að einn þriðji líffæraþega hélt sig hafa fengið hluta af persónuleika líffæragjafans með líffærinu.
Prófessor Bruce Hood, sem framkvæmdi kannanirnar, segist hafa rætt við sjúklinga er telja sig hafa fundið fyrir sambandi við líffæragjafana og jafnvel fundið fyrir minningum þeirra og lífsreynslu. |
