| Vill að Landspítalinn verði ohf. |
| Sunnudagur, 20. Apríl 2008 21:36 |
|
Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra skipaði í október nefnd til að skoða rekstur Landspítalans gaumgæfilega. Vilhjálmur Egilsson, fer fyrir nefndinni en hún á að skila niðurstöðum í júní. Nokkurs óróa gætir meðal starfsmanna Landspítalans vegna óvissu um framtíð hans.
Birni Zoëga finnst koma til greina að einfalda þurfi stjórnun spítalans. Hvort sem það verði gert með því að breyta lögum eða rekstrarformi spítalans.
Vilhjálmur Egilsson segir að skoðað verði hvort gera eigi Landspítalann að opinberu hlutafélagi, nefndin hafi ekki tekið ákvörðun um neitt enn. Hann viti hins vegar til þess að vilji sé til þess hjá mörgum innan spítalans að svo verði og að reynsla frá Noregi sé góð. Verði Landspítalinn gerður að opinberu hlutafélagi gæti það aukið sveigjanleika í rekstri. |

Vel kemur til greina að gera Landspítalann að opinberu hlutafélagi. Þetta er mat Björns Zoëga, annars starfandi forstjóra spítalans. Vilhjálmur Egilsson, formaður nefndar um Landspítalann, segir slíkt rekstarform geta aukið sveigjanleika í rekstri.