| Viltu gefa hjartað í þér? |
| Miðvikudagur, 24. Mars 2010 00:00 |
|
Kristján Möller samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur heimilað að skráð verði í ökuskírteini hvort handhafi þess sé líffæragjafi. Þetta verði gefið til kynna með tákntölunni 900. Ákveðið hafi verið að taka þetta heimildarákvæði með við aðrar breytingar á reglugerðinni. Reglugerðarbreyting hvað líffæragjafa snertir er svohljóðandi: Skráning þessara upplýsinga á ökuskírteinum er einnig heppileg þar sem það eru oft látnir ökumenn sem koma til greina sem líffæragjafar. Ráðherrann segir að vilji stjórnvalda sé kominn fram, heimildin líka og nú þurfi að útfæra ferlið og skráninguna. Samkvæmt reglugerðinni á hugsanlegur líffæragjafi að eiga frumkvæði að því sjálfur að láta skrá viðeigandi upplýsingar um sig í ökuskírteinið. Ein og sama tákntalan, talan 900, gildir hins vegar um allar líffæragjafir og eru þær ekki sundurgreindar frekar. Ríkislögreglustjórinn, sem ábyrgist útgáfu ökuskírteina, á að halda utan um skrá með nánari upplýsingum. En ef líffæragjafi vill hætta við og breyta skráningunni í ökuskírteininu? Kristján Möller segir að þá láti hann má þetta út af skírteini sínu.Menn taka ákvörðun um líffæragjöf eftir vandlega íhugun. En það myndi að sjálfsögðu kosta eitthvað að skipta um skoðun. www.pressan.is 24.03.2010 |
