| Vísar allri gagnrýni á bug |
| Laugardagur, 20. Mars 2010 20:00 |
|
Jafnframt segir hann rangt að mönnun samkvæmt nýja kerfinu verði undir öryggismörkum. „Okkur dytti aldrei í hug að gera breytingu sem stefndi öryggi sjúklinga í hættu. Við teljum að mönnun verði næg,“ segir Björn og bætir við: „Komi í ljós að svo sé ekki þá verður að sjálfsögðu brugðist hratt við því.“ Spurður um þá gagnrýni að nýja kerfið brjóti reglur um hámarksvinnutíma samkvæmt Evróputilskipun sem innleidd var í íslensk lög segir Björn það alrangt. „Við höfum margskoðað þetta og almennir læknar hafa ekki getað sýnt fram á að það hafi verið þverbrotnar neinar reglur. Það er alveg ljóst að læknar munu samkvæmt nýja vaktakerfinu þurfa að vinna fleiri dagvinnutíma á mánuði auk þess sem kvöld- og næturvaktir verða styttri og unnar nokkra daga í röð sem sé breyting miðað við í dag. Hins vegar erum við undir hámarksvinnutímanum sem kveðið er á um í tilskipuninni,“ segir Björn. Aðspurður hvert hámarkið sé segir hann það vera 48 klst. að meðaltali á viku yfir allt árið. „Okkar mat er að við uppfyllum Evróputilskipunina og þá erum við örugglega einn af fáum spítölum í Evrópu sem gerir það.“ |
