| Von á fjölda uppsagna á Landspítala |
| Þriðjudagur, 26. Febrúar 2008 09:43 |
|
"Þessar breytingar leggjast afar illa í okkur. Við teljum að þeir sem að nýju vaktarplani standa séu ekki með á nótunum varðandi gæði og öryggi sjúklinga," segir Vigdís Árnadóttir, trúnaðarmaður skurðstofu á Hringbraut. Breytingarnar fela meðal annars í sér að skurðhjúkrunarfræðingur sem ekki er þjálfaður í keisaraskurði getur verið kallaður inn á kvennadeild sé hann á vakt þó hann sé sérþjálfaður í hjartaskurðaðgerðum og öfugt. Eldra fyrirkomulag hefði þó gert ráð fyrir að sérþjálfaður starfsmaður á bakvakt væri kallaður til. "Við höfum öryggi sjúklinga í fyrirrúmi og teljum að ef standa eigi við þetta fyrirkomulag sé sjálfkrafa búið að segja okkur upp. Við viljum ekki starfa við svona aðstæður," segir Vigdís.
Katrín Sigurðardóttir, formaður Félags geislafræðinga, segir nýjar vaktir koma niður á kjörum starfsmanna. "Mikil óánægja er með þessar breytingar," segir hún.- kdk |
