facebook

Vongóð um sátt í læknadeilu
Mánudagur, 05. Apríl 2010 13:13
Lsh_Kringlan_1Almennir læknar á Landspítalanum eru ekki enn komnir til starfa. Þeir lögðu niður vinnu á miðnætti á miðvikudagskvöld vegna ósamkomulags um fyrirkomulag vinnutíma.

Hjördís Þórey Þorgeirsdóttir, formaður Félags almennra lækna, segir að þreifingar séu í gangi á milli deiluaðila. Hún segist vongóð um að hægt sé að leysa deiluna fyrir morgundaginn.

Sérfræðilæknar hafa gengið í störf almennra lækna yfir páskahátíðina til þess að brúa það bil sem hefur skapast.

www.visir.is 05.04.2010

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066