| Will you still love me tomorrow...?!? |
| Föstudagur, 07. September 2007 22:36 |
|
7. september 2007 Will you still love me tomorrow...?!?Ég velti því fyrir mér lengi hvernig ég ætti að skrifa þennan pistil, hvernig ég ætti að láta hann hljóma og kannski ekki síst... enda. Ég hef enn ekki komist að niðurstöðu en ég held að ég þurfi ekki að vita allt, bara viðurkenna hvernig mér líður í raun og veru. Ég geri því mitt besta til þess að koma þessu frá mér á skiljanlegan hátt. Ég var spurð fyrir mögum mánuðum, hvort ég væri ekkert hrædd um að Bjössi myndi hætta að vera skotinn í mér ef honum myndi batna. Ég hló og sagði nei en ég hefði velt því fyrir mér. Bætti svo einhverju gáfulegu við sem ég man ekki lengur hvað var og fór. Allt í góðu. Mér líkar það vel þegar fólk spyr um það sem það er raunverulega að hugsa. Og líka kannski þegar fólk greinilega hugsar um það hvernig það er að vera í okkar sporum. En spurningin sat í höfðinu á mér á eftir. Er ég hrædd? Er ég jafn hrædd við það að honum batni eins og ég er hrædd við það að honum batni ekki? Hvernig manneskja væri ég þá? Hvers konar kona myndi halda í það ástand að hafa manninn sinn veikann? Get ég virkilega verið svo sjálfselsk að vilja ekki að honum batni? Gæti það verið að ástæða þess að við eigum svo vel saman, sé sú að hann er eins og hann er?... þegar hann er veikur?... Gæti verið að við ættum ekki eins vel saman þegar hann er fullur af orku og lífi? Kannski er þetta ekkert flókin spurning samt en bara svo einfalt að spyrja hennar þegar annar aðilinn er veikur. Væri ekki jafn vel hægt að spyrja full heilbrigt fólk þessarar spurningar? Mun ástin endast? Á hinn boginn, þá er staðreyndin sú að við erum alin upp í þeirri trú að hjartað sé stöð ástarinnar. Við tölum í hjartans einlægni og við elskum af öllu hjarta. Hvað gerist við ástina þegar hjartað skemmist? Hvað gerist þegar hjartað breytist og það er skorið í það og það aðlagast nýjum aðstæðum? Elskum við kannski bara með heilanum?
Grínið okkar Bjössa í fúlustu alvöru þó var að í aðgerðinni hafi þeir hlutar hjartans verið skornir í burtu sem aðrar konur áttu í fyrir okkar tíma. Þetta var eitt af því fyrsta sem hann sagði við mig þar sem hann lá á gjörgæslu eftir aðgerðina, að það hefði tekist! Ég veit þetta svo vel. Ég veit það af allri minni vissu og af öllu mínu hjarta að hann elskar mig og ekki bara með hjartanu. Hann myndi halda áfram að elska mig þó hann færi í hjartaskipti.
En það er eitthvað óöruggt við það samt að hrufla við hjartanu. Af því við elskum af öllu hjarta. Af því að stórar breytingar á lífi okkar valda stórum breytingum á því hver við erum.Af því að leiðir okkar í gegnum breytingarnar eru ekki þær sömu, af því við förum ekki í gegnum það sama. Af því þetta er kannski ekkert flóknara en aðrar stórar breytingar á lífum fólks. Ef fólk fylgist ekki að í ferlinu þá getur það vaxið frá hvort öðru.
Vá pælið í því! Hvað ef við færum í gegnum allan þennan tíma sem hefur tekið svo á en jafnfram gefið svo mikið og svo myndum við bara vaxa hvort frá öðru. Þvílík vonbrigði! Ég hef aldrei efast um það að Bjössi elskar mig. Ég hef aldrei efast um það að ég elska hann. Ég hef aldrei efast um það að við verðum saman þegar við verðum gömul. En ég hef aldrei efast um áhrif lífsins / örlaganna / Guðs á plön okkar. Við ráðum ekki öllu. Það fer ekki alltaf allt eins og við hefðum helst kosið, þá væri Bjössi ekki veikur. Það eina sem ég get er að treysta og gera mitt besta. Mun hann elska mig á morgun? Ef ég svara já með fullri sannfæringu þá kannski verður svarið nei. Ég ætla því að leggja mig fram við það að elska. |
