| Yfir 100 þúsund Bandaríkjamenn bíða líffæraígræðslu |
| Fimmtudagur, 13. Nóvember 2008 13:19 |
|
Biðlistar nýrnaþega í Bandaríkjunum hafa lengst um 42% frá því í janúar 2004. Á sama tíma hefur fækkað á biðlista vegna lifrarígræðslu um 4% og þeim sem bíða eftir hjartaígræðslu hefur fækkað um 23%. Líffæraflutningum í Bandaríkjunum hefur fjölgað um rúmlega 11% frá árinu 2003 og dauðsföllum hefur að sama skapi fækkað ár frá ári. Í fyrra létust 6.700 Bandaríkjamenn sem biðu eftir líffæragjöf. Þörfin fyrir líffæri eykst stöðugt og hafa yfirvöld hvatt fólk til að skrá sig á líffæragjafalista. |
